Aprílgabb: Samtök aðgerðarsinnaðra femínista gegn feðraveldi og óréttlæti (SAFFÓ) stofnuð í dag!

Að undanförnu hefur mikil umræða átt sér stað umbaráttuaðferðir femínista og meintar öfgar þeirra félaga sem vinna að hugmyndafræðinni. Nú er svo komið að nokkuð stór hópur róttækra femínista hefur ákveðið að standa undir nafni og stofna raunverulega öfgahreyfingu með það að markmiði að hrista upp í samfélaginu og þrýsta á raunverulegar breytingar.

Fundir, ráðstefnur og aðrar máttlausar aðgerðir eða mótmæli sem kvennahreyfingin hefur staðið fyrir fram til þessa hafa engu skilað og er kominn tími til að hart verði látið mæta hörðu.

Í dag kl. 14.00 verður haldinn stofnfundur Samtaka aðgerðarsinnaðra femínista gegn feðraveldi og óréttlæti (SAFFÓ) við Bríetartorg á horni Amtmannsstígs og Þingholtsstrætis. Þar verður lesin upp stofnskrá félagsins og fólki gert kleift að skrá sig inn. Auk þess má búast við uppákomum sem seint munu gleymast og marka upphafið að lokum feðraveldisins.

Í stofnskránni kemur fram berum orðum að SAFFÓ hyggst ekki gefa neitt eftir heldur beita öllum nauðsynlegum aðferðum til að ná fram markmiðum sínum.

Fjölmiðlar og róttækt hugsjónafólk er boðið velkomið á fundinn sem hefst stundvíslega kl. 14.00.

Fyrir hönd undirbúningshóps um stofnun SAFFÓ,

Sóley  Tómasdóttir, Hildur Lilliendahl og María Lilja Þrastardóttir

Fyrirvari: Allt sem fram kemur í þessari færslu og athugasemdum er í anda alvöruleysis og léttúðar og ber að lesa með það í huga.

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.