Við krefjumst breytinga!
Meðlimir femínistafélagsins Auðar krefjast breytinga á viðhorfum og hegðun innan lögfræðingastéttarinnar, réttarvörslukerfisins og lagadeildar Háskóla Íslands.
156 konur í réttarvörslukerfinu hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu undir yfirskriftinni „Þögnin rofin“. Henni fylgdu 45 reynslusögur af kynferðislegri áreitni, ofbeldi og kvenfyrirlitningu innan réttarvörslukerfisins. Þetta er kerfi sem mörg okkar stefna á að starfa í að námi loknu, en ljóst er að margt þarf að breytast svo vinnuumhverfið hljómi spennandi í hugum ungra femínískra lögfræðinga.
Við stöndum með þeim konum í réttarvörslukerfinu sem stigu fram og sögðu frá því ofbeldi og áreitni sem þær hafa orðið fyrir í sínu starfsumhverfi. Við tökum undir orð þeirra um að vinna gegn kynbundnu ofbeldi og áreitni verði að vera sett í forgang og að allir vinnuveitendur þurfi að axla ábyrgð á að uppræta vandamálið.
Kynbundið ofbeldi, áreitni og mismunun er staðreynd í þessari stétt eins og öðrum stéttum samfélagsins. Meðlimir femínistafélagsins Auðar vita þó að mörkin eru skýr og það á fólk sem vinnur í kerfinu einnig að vita. Það er því skammarlegt að í kerfi sem meðal annars á að sjá um að vernda þolendur ofbeldis þrífist ofbeldi, áreitni og mismunun. Við krefjumst þess að breytingar verði hér á.
Þá undra meðlimir félagsins sig einnig á því að þrátt fyrir að konum sem stunda nám við lagadeild Háskóla Íslands hafi farið fjölgandi og þær séu nú fleiri en karlar í deildinni upplifi þær deildina oft karllæga í viðhorfum. Þessu þarf jafnframt að breyta.
Femínistafélagið Auður tekur skýra afstöðu. Kynbundið ofbeldi, áreitni og mismunun á ekki að líðast. Breytum þessu svo það verði ekki fráhrindandi fyrir nýútskrifaða lögfræðinga sem langar að vinna af hugsjón í réttarvörslukerfinu að stíga þar inn.