Yfirlýsing

Vegna ráðningar Ingólfs Þórarinssonar til að stýra Brekkusöng á Þjóðhátíð:

Þolendur reyna ítrekað að skila skömminni, með byltingum á borð við #metoo, #þöggun, #sagðinei, #höfumhátt, #konurtala. Fólk virðist hlusta en heldur síðan áfram í gegnum lífið blint á þetta. Fólk hættir að hlusta eða gleymir og gerendur taka sitt pláss til baka, eftir lítin sem engan skaða á mannorði. Á meðan hrekjast þolendur burt, með laskað mannorð og ásakanir um lygar. Fólk reynir samt ekki að gera betur. Það rökstyður sig sjálft að slaufunarmenning (e. cancel culture) í íslenskum tónlistarheimi er ekki til. 

Ingó er góður tónlistarmaður, það ætlum við ekki að taka af honum, en hann er ekki ómissandi. Það er vel hægt að finna annan í hans stað. Af hverju er ekki hægt að ráða t.d. Jón Jónsson eða Friðrik Dór? Hvað hefur Ingó fram yfir þá? Fyrir utan þá meintar ásakanir um allskonar misjafna hegðun. Þegar margar meintar ásakanir eru í gangi, sem spanna að virðist frá 2006-2019 (miðað við frásagnir sem okkur hafa borist), þá ætti hann að halda sig til hlés. Halda sig frá sviðsljósinu, reyna að taka minna pláss, axla ábyrgð og gera betur. Eftir allar þessar byltingar, til og með tvær me too byltingar, ættum við að vera komin lengra. 

Við í Öfgum (hópur kvenna á samfélagsmiðlinum TikTok) ásamt konum úr AGN (Aktívismi gegn nauðgunarmenningu á Facebook) óskum svara frá Þjóðhátíðarnefnd, hvernig þetta sé réttlætanlegt. Hvers vegna er meira virði að ráða meinta kynferðisbrotamenn en að virða þolendur? Hérna er heldur ekki bara tal um einn meintan geranda, eða tvo. Heldur er einnig ráðinn meintur eltihrellir. Hvernig er það réttlætanlegt? Hvernig ætlið þið að berjast gegn nauðgunum á Þjóðhátíð ef þið ráðið til ykkar meinta gerendur sem sýnir skýra afstöðu ykkar gegn þolendum?


Af hverju að taka áhættuna eftir ítrekaðar ábendingar um meinta misjafna hegðun? Hvernig væri að leyfa þolendum að njóta vafans? Af hverju hallar alltaf á konur hjá ykkur? Af hverju virðist lítill vilji vera til að gera betur? 
Þið flotta tónlistarfólk – Nú gerum við okkur grein fyrir því að þetta sé klíka, í tónlistarheiminum, en er einhver séns að þið hjálpið okkur í þessari baráttu? Setja niður fótinn? Við biðlum til ykkar. Stöndum með þolendum og leyfum þeim að njóta vafans. Hættum að ráða meinta gerendur á kostnað tónlistarkvenna og þolenda.


Virðingarfyllst – Öfgar,

Ólöf Tara Harðardóttir 

Hulda Hrund Sigmundsdóttir

Tanja M. Ísfjörð Magnúsdóttir 

Erna Sigrún Hallgrímsdóttir

Helga Benediktsdóttir

Ninna Karla Katrínardóttir

Anna Sonde  

Aðalheiður Fríða Hákonardóttir

Brynhildur Yrsa Valkyrja Guðmundsdóttir


Ásamt AGN,

Elín Hulda Harðardóttir

Birgitta Sigurðardóttir

Sigrún Huld Skúladóttir

Steinunn Hákonardóttir

Elsa Björk Harðardóttir

Helga Vala Garðarsdóttir

Særún Ösp Þorláksdóttir

Inga Rós VatnsdalEyrún

Eva Gunnarsdóttir

Fjóla Heiðdal

Tinna Haraldsdóttir

Ingveldur Gísladóttir

Kristín Jónsdóttir

Ragna Björk Ragnarsdóttir

Ólína Lind Sigurðardóttir

Jóhanna Perla Gísladóttir

Sólrún Einarsdóttir

Helga Ólöf

Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir

Halldóra Jónasdóttir

Silja Ástudóttir

Sigrún Ósk Arnardóttir

Matthildur G. Björk Einarsdóttir

Helga Gestsdóttir

Inga María Ólafsdóttir

Særún Magnea Samúelsdóttir

Annie Marín Vestfjörð

Hafdís Erla Jónudóttir

Friðgerður Ósk Jóhannsdóttir

Júlía Garðarsdóttir

Arna Björk Hafberg Gunnarsdóttir

Halldóra Jóhanna Hafsteinsdóttir Âû

Sara Björk BieringÞórhildur Löve

Anna Lind Vignisdóttir

Birta Guðmundsdóttir 

Kristrún Ýr Einarsdóttir

Emma Ásudóttir Árnadóttir

LóaFanný

Rósa Bjarnadóttir

Sigurbjörg Anna Þorleifsdóttir

Edith Bech

Katrín Stefanía Klemenzardóttir

Ingibjörg Eyfjörð Hólm

Bylgja Júlíusdóttir

Ásta Þórisdóttir

Ásdís Virk Sigtryggsdóttir 

Melkorka Huldudóttir

Oddrún Ólafsdóttir

Rakel Steinberg Sölvadóttir

Auður Ösp Hlíðdal Magnúsdóttir

Sunneva Holm

Freyja Fannberg Þórsdóttir

Kristín Elfa Guðnadóttir

Tanja Andersen Valdimarsdóttir

Kristín Erla Benediktsdóttir

Sandra Rut Skúladóttir

Elva Dögg Blumenstein

Kristbjörg Sigtryggsdóttir

Hallveig Hörn

Ólöf Dóra Bartels Jónsdóttir

Hildur Guðbjörnsdóttir

Sjöfn Friðriksdóttir

Birgitta Rós Björnsdóttir

Gerður Yrja Ólafsdóttir

Sigurlaug LáraHildur Sigurðardóttir

Erla Einarsdóttir

Sigrún Sól Ólafsdóttir

Eyrún Eva Gunnarsdóttir

Sigrún Huld

Ásdís Ágústsdóttir

Þuríður Ósk Gunnarsdóttir

Margrét Heiður Jóhannsdóttir

Elísabet Kristjánsdóttir

Karin Eva Hermannsdóttir

Sunna Björg Elín Kona Eddudóttir

Rebekka Rosinberg

Ragna Björg Björnsdóttir

Elísa Snæbjörnsdóttir 

Kristín Stefánsdóttir

Þórunn Vignisdóttir

Sigrún Fanney

Freydís Dögg Steindórsdóttir

Eydís Eir Brynju-Björnsdóttir

Helena Þóra Kærnested

Edda Rún Aradóttir 

Dóra Dögg

Eija Jansdotter

Magnea Jónasdóttir

Urður Bergsdóttir

Steinunn Diljá Högnadóttir

Sigríður Ása

Kolbrún Jónsdóttir

Anna Linda Matthiasdóttir

Ragnheiður H B Hafsteinsdóttir

Tinna Eik Rakelardóttir

Klara Mist Pálsdóttir

Maggý Helga Jóhannsdóttir Möller

Ragnhildur Erla Þorgeirsdóttir

Þórhalla Bjarnadóttir

Sóley Tómasdóttir

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir

Sigurrós Yrja Jónsdóttir

Hrafnhildur Snæbjörnsdóttir

Silja Ástudóttir

Helga Sara Henrysdóttir

Kolbrún Erna Pétursdóttir

Eva Dögg Jóhannesdóttir

Kristín Inga Jespersen

María Rut Hinriksdóttir

Linda Björk Einarsdóttir

Júlía Garðarsdóttur

Bergljót María Sigurðardóttir

Heiða Valdís Ármann

Kristín Erla Kristjánsdóttir 

Hrafnhildur Guðjónsdóttir

Ásta Grétars

Hafdís Arnardóttir

Steinunn Valbjörnsdóttir

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.