Hvetjum fólk til að standa með þolendum og yfirgefa brekkuna á miðnætti.

Það er bara eitt ár síðan þolendur og aktívistar fengu nóg af því að meintum
gerendum sé hampað á stærstu útihátíð landsins.
Í fyrsta skiptið var hlustað, eða hvað?


Eftir mörg ár af baráttu, margar byltingar og berskjöldun þolenda þá var eins og núna
væri kannski tími þolenda kominn? Núna ári síðar er maður uppi á sviði sem hefur í
tvígang verið kærður fyrir nauðgun.
Þema druslugöngunnar í ár var valdaójafnvægi. Metoo byltingin síðastliðnu 12
mánuði hefur verið afhjúpun á valdamönnum sem í krafti valda og samfélagsstöðu
beita ofbeldi, framlengja ofbeldinu með yfirlýsingum í fjölmiðlum og í skjóli réttakerfis
sem verndar þá. Þeir komast upp með það án þess að þurfa nokkurntímann að axla
ábyrgð, á meðan samfélagið sýpur hveljur yfir breyttu landslagi sem kallað er
slaufunarmenning.
Þessi meinti nauðgari sem um ræðir gerði akkurat það. Opinberlega veittist að æru
þolanda sem kærði hann fyrir nauðgun og kærði hana svo fyrir rangar sakagiftir.
Seinna málið fór ekki jafn hátt í umræðunni því við sem samfélag brugðumst
þolendum með því að kokgleypa við aðförinni sem stóð yfir vikum saman. Hann bjó
til uppskrift fyrir alla hina og mörgum árum síðar eru þessar aðferðir meintra gerenda
enn við lýði.
Með þessari ákvörðun hrifsaði þjóðhátíðarnefnd því alla von frá þolendum um að
geta mætt á þolendavæna þjóðhátíð.

Allt í nafni forréttinda manns sem hefur aldrei nokkurntímann axlað ábyrgð.


Öfgar ásamt 130 öðrum konum gerðu ákall á tónlistarfólk með yfirlýsingu síðasta árs.
Að tónlistarfólk tæki afstöðu og nýttu sitt vald til þess að hafa áhrif. Ekkert ykkar
hefur sagt eitt einasta orð. Ekkert ykkar hefur notað platformið til þess að sýna að þið
standið með þolendum og að þið fordæmið að menn innan ykkar geira beiti ofbeldi.
Slaufunarmenning gegn meintum gerendum er ekki til. Ákvörðun þjóðhátíðarnefndar
og þögn tónlistarfólks sannar að þràtt fyrir allar byltingarnar sem þolendur og
aktívistar hafa staðið fyrir í aldanna rás, að þolendur skipta ykkur engu máli. Að
slaufunarmenningin beinist að þolendum. Við skiljum því vel ákvörðun Bleika fílsins
að leggja árar í bát þetta árið eftir 10 ár af óeigingjarnri vinnu í erfiðu landslagi.
Skilaboðin gætu ekki verið skýrari. Þið tókuð einhliða ákvörðun þegar að þið
ákváðuð að það væri mikilvægara að hafa meintan nauðgara beran að ofan uppi á
sviði að berja á trommur.


Að lokum viljum við hvetja ykkur sem standið með þolendum að yfirgefa brekkuna
þegar hann stígur á svið. Hlutleysi er ekki til. Hlutleysi þýðir afstaða með meintum
geranda.

Færðu inn athugasemd

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.