16. desember í jóladagatalinu er … Olympe de Gouges

Höfundur: Kristín Jónsdóttir

 

Olympe de Gouges. Myndin er sótt hingað.

Olympe de Gouges. Myndin er sótt hingað.

Marie Gouze fæddist 7. maí 1748 í Montauban í Frakklandi. Opinberlega var hún dóttir slátrara, en altalað var í bænum að móðir hennar hefði átt hana með elskhuga sínum, sem var af aðalsættum.

24. október 1765 giftist Marie Gouze verslunarmanni frá París, sem átti í viðskiptum við sláturhús Gouze fjölskyldunnar. Hann var þrjátíu árum eldri en hún og er lýst sem dónalegum og ókúltíveruðum durgi. Nokkrum mánuðum eftir brúðkaupið fæddi hún einkasoninn, Pierre. Hún varð fljótlega ekkja, en eiginmaðurinn fórst í flóði 1766.

Til að halda frelsi sínu til að skrifa og fá að gefa út bækur giftist hún aldrei aftur, því samkvæmt frönskum lögum mátti gift kona ekki gefa út ritverk nema með samþykki eiginmannsins. Hún ákvað einnig að taka sér listamannsnafn í staðinn fyrir að kynna sig með nafni eiginmannsins. Þannig varð hún Olympe de Gouges.

Hún var eindregið á móti hjónabandinu, sem var að sjálfsögðu á þessum tíma alltaf tengt kirkjunni, og skrifaði um möguleika fólks til að gera með sér einhvers konar samning. Slíkur samningur er nú til í Frakklandi, undir nafninu PACS, sem er nokkuð sambærilegur við hina íslensku „staðfestu sambúð“.

Hún skrifaði 30 leikrit sem fjölluðu um hin ýmsu hugðarefni hennar, stöðu kvenna en einnig stöðu svartra og alla þá sem minna máttu sín, munaðarlaus börn, fátæka og sjúklinga.

Í frönsku byltingunni fór Olympe de Gouges mikinn. Hún endurskrifaði Mannréttindayfirlýsinguna með konur í huga og kallaði þá yfirlýsingu Kvenréttindayfirlýsinguna, eða Déclaration des droits de la femme et de la citoyenne.

Exécution d'Olympe de Gouges. Mattais, 1793. Myndin er sótt hingað.

Exécution d’Olympe de Gouges. Mattais, 1793. Myndin er sótt hingað.

Hún skrifaði og ótal pólitískar greinar og auglýsingaspjöld sem hún prentaði á eigin kostnað og límdi upp víða um Parísarborg. Þessi baráttuvilji hennar varð til þess að hún var að lokum hneppt í fangelsi, byltingin sem blés konum kraft í brjóst reyndist ekki vera fyrir konur og kvenfrelsi, karlarnir vildu sitja einir að kötlum nýfenginna valda og konurnar áttu að snúa aftur inn á heimilin nú þegar sigurinn hafði unnist. Þær áttu ekki að fá að taka þátt í pólitíkinni þótt þær hefðu gegnt ýmsum mikilvægum hlutverkum í baráttunni.  Olympe de Gouges var dæmd til dauða fyrir dreifingu á plakati sem gagnrýndi ógnarstjórn Robespierre og var tekin af lífi í fallöxinni 1793.

 Quelles que soient les barrières que l’on vous oppose, il est en votre pouvoir de vous en affranchir ; vous n’avez qu’à le vouloir.

Hverjir sem tálmarnir sem reistir eru gegn ykkur eru, getið þið sigrast á þeim; viljinn er allt sem þarf.

Í raun má auðveldlega færa rök fyrir því að Olympe de Gouges hafi verið of framsýn og að heimurinn hafi ekki verið tilbúinn fyrir hana meðan hún lifði. Fyrir utan hugmyndir um staðfesta sambúð án afskipta kirkjunnar, afnám þrælahalds og jafnrétti til handa konum hafði hún ákveðnar hugmyndir um skattkerfi sem sæi til þess að hlúa að fátækum og sjúkum, sem var fest í lög 1914 með lögum um tekjuskatt.

Í dag er iðulega vísað til hennar sem fyrsta franska femínistans og hún hyllt sem byltingarhetja.

Déclaration des droits de la femme et de la citoyenne - Kvenréttindayfirlýsingin. Myndin er sótt hingað.

Déclaration des droits de la femme et de la citoyenne – Kvenréttindayfirlýsingin. Myndin er sótt hingað.

 

Heimildir:

http://www.marianne.net/Olympe-de-Gouges-une-femme-contre-la-Terreur_a231276.html

http://fr.wikipedia.org/wiki/Olympe_de_Gouges

http://www.journaldesfemmes.com/dossier/0704-femmes-histoire/8.shtml

Færðu inn athugasemd

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.